25. febrúar 2018
Helgin var ansi viðburðarík eins og oft vill verða. Laugardagur hófst með opnu húsi og aðalfundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Árnessýslu. Báðir viðburðir líflegir og ágætlega fjölmennir.
Eftir hádegi hittumst við síðan afkomendur Aldísar og Kristins í Áresi á Selfossi. Þetta var afar
skemmtilegt og gaman að rifja upp og heyra sögur frá þeim sem eldri erum. Sigfús frændi var höfuð ættarinnar á staðnum og á myndinni má sjá hann ásamt barnabörnunum í Árnesi. Það er gaman að geta þess að húsið þeirra afa og ömmu var fjórða húsið sem byggt var á Selfossi svo þau voru svo sannarlega frumbyggjar í þeim bæ.
Amma og afi voru fædd 1893 og 1902. Bræðurnir í Árnesi voru þrír. Guðmundur elstur, þá Sigfús og síðan pabbi sem var yngstur. Við vorum 10 barnabörnin áður en Ingvar frændi lést í bílslysi. Langömmuogafabörnin eru orðin 20 og langalangömmuogafabörnin eru 2. Það er ekki magnið sem skiptir máli í þessum fræðum heldur gæðin mín kæru :-) Þetta skrifa ég nú bara fyrir Lárus minn en afkomendur mömmu hans eru þegar orðnir um 60 og hún er bara 86 ára.
Mínir litlu ömmustrákar eyddu síðan laugardegi og fram á sunnudag hjá okkur svo það var líflegt.
Latibær á sunnudaginn, kaffi hjá mömmu og hittingur Menntaskólasystra um kvöldið gerði góða helgi bara betri.

Comments:
Skrifa ummæli