3. febrúar 2017
Ætlaði að deila þessari yndislegu mynd af litla ömmugulllinu mínu á facebook en þar sem Ipadinn er í mótmælum gekk það ekki. Þið mínir dyggu lesendur fáið bara að dást að mér og skinkubrauðinu í staðinn. Haraldur Fróði kallar litla bróðir sinn þessu frumlega nafni enda er skinkubrauð það allra besta sem hann veit og því finnst honum hrein snilld að litli bróðir fái þetta fína nafn.
Leyndardómur nafnsins mun væntanlega uppljóstrast um næstu helgi en þá hefur verið blásið til nafnaveislu.
Comments:
Skrifa ummæli