2. janúar 2017
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og kærar þakkir fyrir skemmtilegar samverustundir og gott samstarf á liðnum árum.
Ég set mér alltaf áramótaheit vel vitandi það að oftast tekst mér ekki að halda þau. Í ár eru þau aldrei þessu vant ekki tengd líkamsrækt eða einhverju slíku enda er ég ágætlega ánægð með sjálfa mig og komin á þann aldur að ég er nú bara ótrúlega ánægð með hvert ár, hverja hrukku og hvert kíló enda búin að hafa hálfa öld til að safna þessu öllu saman :-)
Nei núna ætla ég að rembast við að njóta fleiri stunda með þeim sem með þykir vænst um og er búin að setja mér mælanleg markmið í þeim efnum. Einnig ætla ég að lesa dagblöð/dagblað á hverjum degi og blogga á þessu bloggi að lágmarki 2x í viku á næsta ári. Það er alveg hreint með ólíkindum hvað samfélagsmiðlar, facbook og snapchat, eru miklir tímaþjófar og því verða þeir að víkja fyrir áramótaheitunum eigi þau að virka á þessu ári !
En í dag var ég mætt snemma í vinnuna og naut þess að vera ein að bardúsa á skrifstofunni enda höfum við hér í heiðri þann góða sið að mæta ekki fyrr en kl. 9 að afloknum lengri fríum og það gerðu því flestir aðrir í morgun.
En í dag átti ég góða fundi með aðilum tengdum garðyrkju. Báðir voru jákvæðir og sáu framtíð í greininni sem fyllti okkur bjartsýni. Lyklar að garðyrkjustöðinni við Þelamörk duttu í hús í dag en bæjarfélagið leysti til sín stöðina nú nýverið.
Hitti einnig Helga formann Rauða krossins hér í Hveragerði en Hveragerðisbær mun útvega þeim geymsluhúsnæði til að safna saman húsgögnum og innanstokksmunum fyrir fjölskylduna frá Sýrlandi sem hingað kemur í lok mánaðarins.
Átti langan fund um skipulagsmál og uppbyggingu með Guðmundi Baldurssyni, skipulags- og byggingafulltrúa og einnig með Eyþóri en hann er formaður Skipulags- og mannvirkjanefndar.
Meirihlutafundur í kvöld þar sem liðir á dagskrá slaga á fjórða tuginn - nóg að gera, kæru vinir, nóg að gera :-)

Comments:
Skrifa ummæli