14. ágúst 2015
Alls konar erill í ýmsum málum í dag.
Við Guðmundur byrjuðum daginn á að fara yfir skipulagsmál á Tívolíreitnum og einnig inn í Dal.
Skipulagsmál eru afskaplega vandmeðfarin og því fannst mér harla undarlegt þegar ég sá um daginn að innst í dalnum er núna komið risastórt plan. Ég hef grun um að þarna eigi að rísa fjárrétt Ölfusinga en við Hvergerðingar höfum ekki heyrt neitt um þessa framkvæmd sem hafa mun heilmikil áhrif á þessu svæði. Hvað á þessi rétt að vera stór? Hvað er gerðið stórt og hvar er það? Hvernig á aðkoma að henni að vera? Hvernig er hönnunin? Falleg eins og Hrunarétt eða hálfgert bráðabirgðamannvirki? Hver er vegtengingin og hvernig fer með vaðið? Fjöldi spurninga en engin svör! Sá síðan í fundargerð bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss frá því í apríl að það eigi að grenndarkynna fjárrét fyrir Hveragerðisbæ. Sú grenndarkynning hefur aldrei farið fram og því tel ég nokkuð ljóst að hér hafi einhverjir farið ansi illilega fram úr sér við framkvæmdir. Þetta verður allt skoðað betur á næstu dögum !
Fundur í framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins síðdegis. Nú er verið að undir´búa Landsfund flokksins sem haldinn verður í haust. Fundurinn er tileinkaður konum í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og þess mun sjá stað í dagskrá og umgjörð.
Comments:
Skrifa ummæli