3. janúar 2013
Fundur bæjarráðs í morgun reyndist vera 150. fundur meirihlutans sem nú er, margt gott hefur verið gert á þessum tíma og starf bæjarfélagsins þróast með ýmsum hætti eins og eðlilegt er.
En annars var fundurinn tíðindalítill og helsta umræðan var um fyrirhugaðann flutning málefna aldraðra yfir til sveitarfélaganna og tillögu Alþingis um persónukjör við næstu sveitarstjórnarkosningar. Málefni sem bæði hafa verið á borði Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fór yfir ýmis atriði varðandi Hamarshöllina í dag og átti afar gott samtal við hana Roshild Jensen sem sér um tilsvarandi byggingu í Tromsö í Noregi. Í rafmagnsleysinu síðdegis var síðan afar gott að heyra að vararafstöðin hrökk strax í gang og því hafði rafmagnsleysið á engan hátt áhrif á húsið.
Fundur síðdegis með Oddgeiri Ottesen sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Hann er hagfræðingur hjá Seðlabankanum og greinilegt að hann býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á fjármálakerfinu. Slíkt er góður kostur í þeirri orrahríð sem framundan er. Hann mun kynna sig betur á næstunni og m.a. mæta í opið hús okkar Sjálfstæðismanna þann 12. janúar næstkomandi. Hvet alla til að fjölmenna þangað.
Einn af hápunktum dagsins var að fá að fara í mæðraskoðun með Laufeyju Sif, litla ömmubarnið dafnar vel en það er væntanlegt í mars. Við getum varla beðið :-)
Úr því ég var nú stödd á fæðingardeildinni á Selfossi þá leit ég við hjá Katrínu Hjálmars en hún eignaðis lítinn dreng i morgun, óskaplega myndarlegan. Hann varð þar með fyrsta barnið sem fæðist á HSu þetta árið. Gaman að Hvergerðingur skuli verða fyrstur ;-)

Comments:
Skrifa ummæli