23. ágúst 2016
Hef að undanförnu vakið athygli ráðherra og þingmanna á þeirri stöðu að nú er samningur Heilsustofnunar enn eina ferðina laus. Get ekki nógsamlega ítrekað mikilvægi þess að gerður verði langur samningur sem taki á þeirri staðreynd að halda þarf húsakosti og tækjum við til að hægt sé að tryggja góðan rekstur til framtíðar. Heilsustofnun hefur fyrir löngu sannað að sjúklingar og dvalargestir hafa stórbætt heilsu sína og líðan með dvöl þar og þannig hafa sparast gríðarleg fjárútlát fyrir hið opinbera sem annars þyrfti að sinna fjölda fólks með miklu dýrari úrræðum. Það getur ekki kallast góð pólítik að skera endalaust niður hjá stofnun sem sparað hefur ríkinu stórar fjárhæðir í gegnum tíðina :-)
Comments:
Skrifa ummæli